10.05.2012 11:04

Allt að gerast

Nú fór tölvan okkar aftur í viðgerð og vonum að hún sé orðin alheil og ekkert meira vesen á næstunni.

En svona eins og vanalega er heilmikið búið að gerast hjá okkur.
Síðasta vetrarmótið var haldið 14. apríl í Hrísholti.  Natan Freyr varð fyrir því óhappi að Spónn var sleginn í fótinn og því gat hann ekki keppt á honum.  Eini hesturinn sem var í eigu Logafélaga og Natan gat tekið í hesthúsinu var því gæðingurinn Frægur frá Flekkudal og fóru þeir félagar, sáu og sigruðu glæsilega þetta síðasta mót.  Öll hin börnin sem höfðu tekið þátt í vetrarmótunum voru að taka þátt í glímumóti á Ísafirði og því fór það þannig að Natan og Sigríður Magnea urðu jöfn að stigum því það er parið (knapi og hestur sem safna stigum) og deila farandbikarnum saman næsta árið :) Natan varð s.s. í 1.-2. sæti með Spón og 5. sæti með Fræg



Sólon tók líka þátt í unghrossaflokki á hryssunni Hyllingu frá Kaldbak og gerði sér lítið fyrir og sigraði.  Þar með stóð hann uppi sem sigurvegari unghrossaflokksins þar sem hann vann öll 3 skiptin. 

_______________________________________________________________________________
Sumardaginn fyrsta 19. apríl útskrifuðumst við pabbi sem Reiðmenn frá Landbúnaðarháskólanum.  
Flúðahópurinn hittist að kvöldi 18. og kíktum við nokkur á Kollubarinn fræga og gerðum okkur glatt kvöld.  Skeifudagurinn hófst síðan kl. 9 um morguninn með forkeppni í Gunnarsbikarnum.  5 knapar komust í úrslit og átti Flúðahópurinn 2 í þeim hópi og fór svo að Eyrún Jónasdóttir sigraði glæsilega.

_________________________________________________________________________________
Fimmgangurinn í uppsveitadeildinni var 20. apríl sl. Sólon fór með hann Svala sinn og þeir félagar lentu í öðru sæti með einkunnina 6,71.  Góður árangur í fyrstu fimmgangskeppninni.  Knútur Rafn vann sig uppúr b-úrslitum og lenti í 4. sæti.  Frægur var ekki alveg eins og hann átti að vera og því drógum við okkur úr keppninni...mjög leiðinlegt þar sem ég sá fram á nokkur stig með þennan gæðing!  En hann verður bara þeim mun betri á Landsmóti!!!!

_________________________________________________________________________________
28. apríl var lokamótið í Uppsveitadeild Æskunnar.  Natan fór með Spón í fjórganginn.  Spónn var eins og ég hef kannski sagt áður, kallaður "Fúli Rauður" !  Hann ákvað þarna að vera pínu fúll, kominn með alveg hundleið á þessari blessuðu höll og þverneitaði að brokka...þar með lenti Natan í 7. sæti og í 2. sæti í heildarstigakeppninni.  Eva María stóð sig svakalega vel þetta árið og sigraði stigakeppnina glæsilega.  Finnur Jóhannesson sigraði heildarstigakeppnina hjá unglingunum og Logi sigraði heildarkeppnina milli liðanna.  Svakalega flottur og skemmtilegur hópur sem kom frá Loga og ofsalega gaman að fylgjast með þessum flottu knöpum!

1. sæti Eva María, 2. sæti Natan Freyr og 3. sæti Sigríður Magnea

Sigurliðið með hluta af verðlaununum, væri gaman að ná mynd af öllum borðunum og bikurunum...þeir voru nokkrir hjá Logafélögum :)
_________________________________________________________________________________

Á morgun föstudaginn 11. maí verður svo lokakvöldið hjá okkur í uppsveitadeildinni.  Keppt verður í tölti og skeiði gegnum höllina.  Sólon er eins og er efstur í stigakeppninni og liðið okkar í 2. sæti...nú verður spennandi að sjá hvernig hlutirnir þróast á morgun... kem með fréttir af því fljótlega!
_________________________________________________________________________________

Kynbótasýningar byrja hjá okkur í næstu viku og verið er að fínstilla og fínpússa fyrir það, spennnandi að sjá hvernig tölurnar falla... 
_________________________________________________________________________________

Og ég verð nú að segja frá því að 1. maí sl. útskrifaðist hann Tristan Máni úr leikskólanum Álfaborg og fer hann í skólann í haust...litla barnið mitt!!! 
Flottur gaurahópur sem yfirgefur leikskólann í sumar :)

Gaurarnir 9 og prinsessurnar 2 sem yfirgefa leikskólann ;)



08.04.2012 21:29

Gleðilega páska

Fallegur páskadagur í sveitinni...frekar mikið gluggaveður en þegar sú gula lét sjá sig og lognið var ekkert að flýta sér þá var ekkert leiðinlegt að vera úti og okkur er farið að hlakka verulega til sumarsins!

En á miðvikudaginn sl. fórum við hjónakornin að keppa í fjórgangi í Uppsveitadeildinni.  Sólon fór með Hnokkasoninn Svala frá Tjörn (er mjög mikið í uppáhaldi hjá okkur og ég án efa búin að minnast á hann áður hehe) og ég fór með Glæsir frá Feti.  

Þetta var fyrsta keppnin hans Svala fyrir utan vetrarmótin og hann fór beint í A-úrslit með einkunnina 6,17 og endaði í 3. sæti með 6,47.  Flottur árangur!
Við Glæsir vorum með 5,90 eftir forkeppni sem dugði í B-úrslit og var ég mjög sátt við okkur.  Við enduðum svo með einkunnina 5,63 í úrslitum og 9. sætið.  2 stig hjá okkur og 8 stig hjá Sóloni fyrir Ástundarliðið og nú erum við í 2. sæti stigi á eftir Liðinu hans Hjalla.  Heildarúrslitin má lesa hér

Hann Djákni frá Minni-Borg er til sölu.  Ég er búinn að eiga hann í 1 1/2 ár og fara með hann í gegnum Reiðmanninn svo hann kann orðið flest allar æfingar.  Djákni verður 11 vetra í vor, svakalega duglegur reiðhestur með góðar gangtegundir.  Hann er ekki fyrir alveg óvana.


Video af Djákna er hérna.

Siggi og Sjöfn kíktu til okkar í dag og tóku út sameignina okkar hana Glaumdísi frá Dalsholti.  7 vetra hryssu undan Glaum frá Kjarnholtum og Koldísi sem er að þróast mjög skemmtilega þessa dagana...spennandi að sjá hvernig hún verður í vor...



Einnig skoðuðu þau systir hennar, Ásdísi frá Dalsholti, 5 vetra undan Ás frá Ármóti og Koldísi frá Kjarnholtum.

01.04.2012 20:32

Tölt, þrígangur og fjórgangur í Uppsveitadeild Æskunnar

Nú um helgina var keppt í tölti hjá börnum og unglingum í Uppsveitadeild Æskunnar.  Einnig var keppt í þrígangi hjá börnum og fjórgangi hjá unglingum.  Mótið hófst kl 10:30 og stóð yfir til rúmlega 16.

Natan Freyr fór með hann Spón sinn í báðar greinarnar og stóð sig alveg eins og hetja.  Hann var efstur eftir forkeppni í báðum greinunum og endaði efstur í tölti með einkunnina 5,67.  Í þrígangi var hann og Eva María saman í 1.-2. sæti með einkunnina 5,25 en dómararnir röðuðu þeim félögum í 2. sæti og Evu Maríu í 1. sæti.  Eva María var einmitt 2. í töltinu svo þetta var rosalega flott mót hjá þeim báðum.



Mótið tókst í alla staði mjög vel og stóðu krakkarnir sig allir svakalega vel.  Flottir krakkar sem Æskulýðsnefndirnar geta státað sig af!!!

Eftir þessar greinar stendur Natan efstur í barnaflokki með 28 stig og Marta Margeirsdóttir í unglingaflokki með 20,5 stig.  Í samanlögðu stendur Logi efstur með 194,5 stig og Smári með 123,5 stig.  ÁFRAM LOGI :)

Úrslitin má lesa hér

Á föstudaginn sl. var haldin Stórsýning Þyts.  Guðmar Hólm sem ég þykist eiga ennþá smá í var hérna í flottu atriði með afa sínum og hryssunni Eyvöru.  Þetta skemmtilega atriði má sjá hérna

Á morgun verður svo æft fyrir fjórganginn sem verður á miðvikudagskvöldið í Uppsveitadeildinni.

27.03.2012 20:54

LOKAPRÓFI LOKIÐ

Þessi fríði og skemmtilegi hópur þreytti lokapróf á Flúðum bæði laugardag og sunnudag sl.  


Reiðmennirnir frá Flúðum og Ísleifur Jónasson reiðkennari.

Á laugardeginum riðum við fyrirfram ákveðið prógram þar sem aðaláherslan var lögð á ásetu, reiðleiðir, gangskiptingar og æfingar.  Höfðum aldrei riðið svona prógram áður en mjög gaman að læra svona próf.  Prófið á sunnudeginum settum við svo sjálf upp, verkefni sem hentaði hverju pari fyrir sig.  Þar var aðaláherslan á gæði gangtegunda og æfinga, svo var einkun fyrir ásetu, stjórnun, uppsetningu verkefnis, flæðis o.fl.   Þar sem ég var búin að leggja mikla áherslu á að læra laugardagsprógrammið setti ég sunnudagsprófið ekki upp í hausnum fyrr en á laugardeginum til að ruglast ekki á reiðleiðum. Enda var maður orðinn nokkuð lúinn eftir þessa helgi, en mjög gott að vera búin með þetta verklega og nú er bara útskrift á Hvanneyri 19. apríl og ætla flest okkar að fara og eiga góða stund saman að kvöldi 18. apríl.
3 efstu úr útskriftarhópunum eiga kost á að mæta með hest á Skeifudaginn 19. apríl á Hvanneyri og taka þátt í Reynisbikarnum.  Við Djákni fórum síðast og verður bara spennandi að sjá hverjir komast áfram enda margir sem tóku mjög flott próf um helgina :)

En eins og alltaf er nóg að gera alla daga og allar helgar.  Laugardaginn 18. febrúar var 2. vetrarmót Loga og Trausta haldið í Hrísholti.  Natan og Spónn enduðu í 2. sæti og Sigríður Magnea í 1. sæti og því eru þau hnífjöfn núna fyrir lokamótið, bara spennandi...
Sólon og Svali frá Tjörn gerðu gott mót aftur og sigruðu unghrossaflokkinn, mjög spennandi par...
Ég fór með hryssuna Glaumdísi frá Dalsholti sem við eignuðumst nýverið helminginn í.  Við lentum í 8. sæti í fullorðinsflokki...mjög spennandi hryssa sem verður gaman að eiga við á næstunni.

Næstu helgi verður keppt í Uppsveitadeild Æskunnar.  Börn keppa í tölti og þrígangi og unglingar í tölti og fjórgangi.  Natan og Spónn ætla sér í báðar greinarnar.  Strákurinn fer að verða með meiri keppnisreynslu en mamman....gaman að hafa góðan hest í barnaflokki og eiga hann sjálfur!!!

Fjórgangurinn hjá okkur í Uppsveitadeildinni verður svo miðvikudagskvöldið 4. apríl...spennandi!




15.03.2012 20:45

Og tíminn líður...

og líður og líður og líður...og langt síðan ég hef sest niður við smá fréttaskrif.

En opni dagurinn hjá okkur 25. feb sl. gekk vonum framar.  Við höfðum ekki nokkra hugmynd hvað við ættum von á mörgum til okkar en við töldum hátt í 200 manns sem kíktu við hjá okkur að deginum.  Um kvöldið buðum við svo vinum og kunningjum í smá veislu og fengum okkur pínulítið í aðra tána og höfðum það skemmtilegt...
Eins og það gaman að hafa þennan opna dag þá var líka alveg ofsalega gott að hann var búinn :)

Við þökkum þeim sem sáu sér fært um að kíkja á okkur, kærlega fyrir komuna!

Á föstudeginum 24. febrúar var smalakeppni í Uppsveitadeildinni.  Við Sólon og Knútur erum saman í liðinu Ástund.  Sólon fékk Spón lánaðan hjá syninum og þeir félagar stóðu sig aldeilis vel og enduðu í 2. sæti.  Knútur og Dögg frá Ketilsstöðum gerðu sér hins vegar lítið fyrir og sigruðu og þar af leiðandi stendur Ástund eins og er efst að stigum.

Hrossaræktarfélag Biskupstungna kom í heimsókn til okkar 3. mars og kíktu á aðstöðuna okkar, margir sem höfðu komið áður en nokkrir sem voru að koma í fyrsta sinn.

Smalakeppni uppsveitadeildar Æskunnar var haldin síðustu helgi á Flúðum.  Á sama tíma kom Hrossaræktarfélag Hraungerðishrepps í heimskókn og tók Sólon á móti þeim meðan ég stappaði Stálinu í Natan Freyr.  Eins og pabbi sinn þá keppti hann á honum Spón og urðu þeir líka í öðru sæti.
Glæsilegir saman!

 

Og svo kíktu í heimsókn til okkar fólk frá sjónvarpsstöðinni N4 og tóku við okkur smá viðtal.  
Afraksturinn má sjá hérna, við komum inn á ca 12 mín.

http://www.n4.is/tube/file/view/2381/

Á laugardaginn verður 2. vetrarmót Loga og Trausta haldið á Laugarvatni.  Við hjónin ætlum að trylla okkur með eitthvað skemmtilegt og spennandi á kerrunni...

...aldrei að vita nema ég skelli inn frétt fljótlega :)

 

15.02.2012 21:21

Opið hús

Laugardaginn 25. febrúar ætlum við hjónakornin að hafa opið hús hjá okkur í tilefni hesthúsbyggingarinnar hérna í Haganum.
 
Allir velkomnir milli 13 og 16, heitt á könnunni...hlökkum til að sjá sem flesta :)


07.02.2012 17:31

Reiðskemman komin í gagnið :)

Loksins, loksins er reiðskemman komin í gagnið.  Það er alveg greinilegt að maður er orðinn góðu vanur og vantaði orðið inniaðstöðu.  Sérstaklega þegar veðrið er búið að vera svona geðslegt eins og í dag.


Nú er búið að koma upp kaffistofu og klósetti, á bara eftir að innrétta og klára en það fer að koma.

Góð loftræsting inni á klósettinu ;)


Séð inn á kaffistofu og náðum að græja svona fínt geymsluloft ofan á klósettinu.


Séð úr kaffistofu yfir hesthúsið.

Pabbi er að græja rafmagnið svo nú förum við að geta skellt kaffikönnunni í samband og boðið upp á rjúkandi kaffi fyrir gesti og gangandi.

Læt hérna fylgja með video af Tristani Mána þjálfa sig og Fræg í inniaðstöðunni góðu.
http://www.youtube.com/watch?v=CJqq9srqhkA&context=C37c6c82ADOEgsToPDskJnumVW2KhQUbVFK-cuVgDt





24.01.2012 22:40

SNILLINGAR

Í gær fór ég með videovélina niður í hesthús og tók smá myndir af Fjölnir þar sem hann er að þjálfa Fræg úti í gerði.  Þetta er það skemmtilegasta sem Fjölnir Þór gerir þessa dagana. 
Strákurinn situr svo flottur á baki, alveg upprennandi hestamaður...og þvilíkur gæðingur sem þessi hestur er, skorar hátt bæði í fimmgang og A-flokk og svo er hægt að nota hann í svona verkefni líka....þarf að ræða þetta eitthvað frekar!!!

Fjölnir og Frægur frá Flekkudal

22.01.2012 21:49

Byrjun árs 2012

Árið 2012 byrjar ágætlega hjá okkur.  Hestarnir týnast inn í húsið en því miður þá er búið að vera vetur á Íslandi.  Ég var eiginlega alveg búin að gleyma hvernig hann er.  Hálka, mikill snjór, skafrenningur og fleira skemmtilegt sem fylgir. Alltaf gott að hafa fjölbreytileika en þar af leiðandi hefur ekki verið skemmtilegt að rúnta um með hestakerru. 
En þetta er allt að koma.  Smiðirnir eru búnir að reisa skemmuna og það er mjög glæsilegt hús, hlökkum mikið til að geta unnir þar inni!


Byrjað er að klæða húsið að utan.


Æðislegt að geta skotist um helgar og járnað 1-2 hesta, þjálfað 3-4 hesta, mokað og sett út og börnin koma og skottast með já eða bara verið heima þar sem Natan stóri bróðir er svo duglegur að passa og svo er náttúrulega ekki langt að fara!!!
Veturinn lítur vel út og hlökkum við mikið til að fást við skemmtileg verkefni í frábæru umhverfi!



Hrossunum líður greinilega mjög vel inni í húsinu og það er nú fyrir mestu.  Veggirnir eru lágir og hrossin ná að kljást yfir veggina.  Þau liggja mjög mikið og það er greinileg værð og vellíðan hjá þeim.

Vonandi náum við fljótlega að hafa opið hús hjá okkur og bjóða þeim sem hafa áhuga að skoða aðstöðuna þó hún verði nú ekki fullbúin....en meira um það síðar :)

Fleiri myndir af herlegheitunum í albúmi
http://hrosshagi.123.is/album/default.aspx?aid=220285

01.01.2012 20:26

Fyrstu hestarnir

Aðeins seinna en við ætluðum en það hafðist á árinu 2011 að taka fyrstu hestana inn í húsið.




Fjölnir er búinn að setja Fræg á sinn stað.

Í telefni af þessum skemmtilega áfanga buðum við öllum á hlaðinu í smá teiti og höfðum kósý stund með smá rautt í hendi og spjölluðum saman meðan hestarnir fengu fyrstu heytugguna í húsinu.


Það er svo sem nóg eftir í hesthúsinu en þetta verður glæsilegt í alla staði og gott að sjá hvað hrossin voru strax sátt og róleg í nýja húsinu..

28.12.2011 20:49

28. des

Gleðileg jól kæru vinir, ættingjar og viðskiptavinir. 
Hér hefur ekki verið mikið um jólafrí, unnið alla daga fram að kvöldi til að koma hestunum inn í húsið.  Við erum búin að lakka steypuna og bera á viðinn svo öll lykt er að fara í burtu, þvílík stybba af þessu!
Núna er verið að setja hurðirnar í stíurnar svo það er nú bara að koma heilmikil mynd á þetta hjá okkur. 
Næstu skrif verða þegar hestarnir verða komnir inn í húsið, vonandi á föstudaginn ;)


Myndir á http://hrosshagi.123.is/album/default.aspx?aid=219029


14.12.2011 21:36

Svo gaman...

Jæja...núna er maður sko farinn að telja niður dagana fram að jólum og keppist eins og ands.... að klára allt sem við eigum eftir að gera :)
En í síðustu viku var byrjað á að smíða einingarnar í skemmuna og nú bíða þær bara eftir að fá að fara á sinn stað. 



Mánudagurinn viðraði vel í steypuvinnu og sem betur fer er nú búið að steypa sökkulinn, sem betur fer!!!
Við náðum að ulla og plasta um helgina, Helgi Þór kom og hjálpaði okkur. 
Svo var hafist handa við að moka út í orðsins fyllstu merkingu.  Þvílíkt magn af gleri og allskonar drasli, svo nú er hægt að sjá inn í stíurnar.

Stían fyrir...                                                    ...og eftir

Næstu skref eru að klára að pússa steypuna, kústa hana og lakka.  Klæða veggi, ganga frá innréttingum.  Haukur yfirpípari ætlar að kíkja á okkur á morgun og vonandi ná þeir að koma hita í kofann.  Hurðirnar koma í á morgun og í dag settum við glugga í húsið...þvílík breyting að sjá húsið með gluggum!!! Ekki kofi lengur heldur HÚS, hlakka til að fá bárujárnið!


Sigurgeir benti á að það væri nú alveg fínt að hafa auka viku í jólin og þar ég svo mikið sammála honum en þetta tosast allt saman og við höldum okkur fast í að taka inn fyrir jólin....

10.12.2011 14:59

Smá frétt um okkur í Hestablaðinu...gaman að því!
http://www.hestabladid.is/frett/68239/

07.12.2011 22:20

-13

Úff hvað það var hrikalega kalt í dag og á mánudaginn, í gær fannst okkur bara hlýtt og notalegt.  BARA -5!!!  En hvorki væla smiðirnir eða kvarta og vinnan gengur hrikalega vel!

Á föstudaginn sl. náðum við að klára að setja þakið á húsið og voru herrarnir bara nokkuð mikið snöggir að því.  Gunni frændi og Jón Ágúst komu að aðstoða, alltaf gaman að fá aukahendur.

Allt að hafast...

....og komið á :)

Nú er verið að undirbúa uppsláttinn fyrir sökkulinn svo það verði allt ready þegar við náum að steypa (hvenær svo sem það verður...)



Nú er samt komin flott mynd af þessu hesthúsi og við förum að verða agalega spennt yfir að fá alla gæðingana í húsið.

Mörg eru nú handtökin eftir og er planið að ulla og plasta húsið um helgina, setja upp ljósin, klára að festa niður þakið og, og, og, og vonandi náum við allavega að gera sem mest.

Lokaprófið hjá mér í Reiðmanninum er um helgina og því verður nóg að gera hérna í Hrosshaganum eins og vanalega.

Nokkrar fleiri myndir hérna í þessu myndaalbúmi
http://hrosshagi.123.is/album/default.aspx?aid=218089

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 48
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 36641
Samtals gestir: 12774
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:08:15